Samþykktir
1.gr.
Heiti og heimili
Heiti hreyfingarinnar er Vor til vinstri. Hreyfingin starfar samkvæmt lögum nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka. Heimilisfang þeirra og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur
Tilgangur hreyfingarinnar er að vera samfélagslegur vettvangur umræðu og aðgerða fyrir félagslegt og efnahagslegt réttlæti. Markmiðið er berjast fyrir rétti fólks til að lifa mannsæmandi lífi.
Hreyfingin hyggst bjóða fram til sveitastjórnarkosninga og kosninga til Alþingis til að ná fram markmiðum sínum.
3. gr.
Skipulag
Mótun stefnu og framkvæmd hennar er í höndum stjórna í umboði félagsmanna.
Aðalfundur er æðsta stofnun hreyfingarinnar. Stjórnir hreyfingarinnar skulu vera sbr. 5. gr.:
- Framkvæmdastjórn
- Málefnastjórn
- Kosningastjórn
Á aðalfundi skal kjósa í stjórnir, til eins árs í senn, aðalmenn og varamenn. Ekki skal nokkur sitja lengur en sex ár sem formaður stjórnar og ekki skal nokkur sitja lengur en tólf ár samtals í stjórnum eða trúnaðarráði. Á aðalfundi skal einnig kjósa 3-5 félaga í trúnaðarráð, sem sinnir innri málum hreyfingarinnar, og félagar geta sent inn erindi um mál sem varða einelti og áreitni. Trúnaðarmenn skulu ekki vera aðilar að stjórnum. Sjá nánar í Skipulagi.
4. gr.
Aðild
Öllum er heimilt að ganga í hreyfinguna – en framkvæmdastjórn er heimilt að neita þeim aðild sem eiga sæti í stjórnum, ráðum eða nefndum annarra stjórnmálasamtaka. Tilkynna skal um aðild að hreyfingunni skriflega, með tölvupósti eða með skráningu á vef hreyfingarinnar.
Hægt er að segja sig úr hreyfingunni með því að tilkynna það skriflega, eða með tölvupósti til hreyfingarinnar.
Framkvæmdastjórn getur, að gættum andmælarétti, vikið félagsmanni úr hreyfingunni ef hann telst alvarlega eða ítrekað brotlegur gegn lögum hreyfingarinnar, trúnaði, birtum siðareglum, samþykktum eða ákvörðunum hreyfingarinnar. Vægari viðurlög geta verið í formi áminningar.
5.gr.
Stjórn
Framkvæmdastjórn hreyfingarinnar skal skipuð 5-7 mönnum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig skal kjósa 2-3 varamenn. Framkvæmdastjórn skiptir með sér verkum og velur sér formann, varaformann, gjaldkera og ritara. Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á daglegum rekstri hreyfingarinnar og fer með málefni hreyfingarinnar milli aðalfunda.
Formaður, eða varaformaður í fjarveru eða umboði formanns, boðar til funda.
Firmaritun er í höndum meirihluta framkvæmdastjórnar.
Framkvæmdastjórn er einni leyfilegt að skuldbinda hreyfinguna að undangengnum tveimur framkvæmdastjórnarfundum, meirihluta samþykki þarf til skuldbindingar.
Kosningastjórn er kjörin á aðalfundi og skal skipuð 3 aðalmönnum og 2 til vara. Kosningastjórn velur sér formann, ritara og gjaldkera. Formaður boðar til funda.
Kosning Málefnastjórnar fer fram á aðalfundi. Skal hún skipuð 5 aðalmönnum og 2 til vara. Stjórn velur sér formann, varaformann og ritara. Formaður boðar til funda.
6.gr.
Endurskoðun reikninga
Endurskoðun reikninga skal vera í höndum löggilts endurskoðenda sem valinn er af framkvæmdastjórn, til eins árs í senn.
7.gr.
Aðalfundur
Framkvæmdastjórn hreyfingarinnar skipuleggur og ber ábyrgð á undirbúningi, framkvæmd og boðun aðalfundar. Aðalfundur skal haldinn ár hvert og skal boðað til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti, svo sem með tölvupósti til allra félagsmanna og auglýsingu á vef hreyfingarinnar. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað.
Tillögur um breytingar á samþykktum og framboð til stjórna skulu berast framkvæmdastjórn hreyfingarinnar skriflega minnst 10 dögum fyrir aðalfund. Fram komnar tillögur um breytingar á samþykktum skal bera upp á aðalfundi ár hvert og kosið um að lokinni kynningu á breytingum og umræðum.
Breytingatillögur á samþykktum sem ekki berast á tilsettum tíma skulu ekki vera teknar fyrir á aðalfundi nema ⅔ atkvæðisbærra fundarmanna samþykki það. Fimm dögum fyrir aðalfund skulu fundargögn og breytingatillögur gerðar aðgengilegar félagsmönnum með tölvupósti eða á vef hreyfingarinnar.
Eingöngu skráðir félagar mega taka þátt á aðalfundi. Félagi fær kosningarétt á aðalfundi eftir að hafa verið í hreyfingunni í eina viku.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla framkvæmdastjórnar lögð fram.
- Reikningar lagðir fram til samþykktar.
- Lagabreytingar.
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning í stjórnir
- Önnur mál.
Aðalfundur getur samþykkt með einföldum meirihluta atkvæða að fresta framhaldi aðalfundarstarfa, að öllu eða einhverju leyti, þar til síðar á starfsárinu ef þörf krefur.
Fundargerð aðalfundar skal send með tölvupósti til aðalfundarmanna ekki síðar en viku eftir fundinn. Veittur er tveggja vikna frestur til að setja fram skriflegar athugasemdir; að þeim tíma liðnum telst fundargerð samþykkt. Aðrir félagsmenn geta óskað eftir að fá fundargerð aðalfundar senda með tölvupósti þegar fundargerð hefur verið samþykkt.
8. gr.
Slit
Komi til þess að leggja þurfi niður eða slíta hreyfingunni þá skal það gert í kjölfar umfjöllunar og kosningar félagsmanna á tveimur aðalfundum í röð, fyrra ár og síðara ár. Skulu eignir hreyfingarinnar renna til þeirra góðgerðarmála sem ákveðin verða á seinni aðalfundi.
9.gr.
Fylling
Þar sem ákvæði þessara samþykkta segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt.